Páskar
p.s mikið andskoti voru United góðir í dag, usssss, Liverpool sá ekki til sólar :D
kv.Davíð
4 athugasemdir

Það er nokkuð ljóst að eina leiðin til að fiska einhver komment upp úr lesendum þessarar síðu er með því að segja frá neyðarlegum atvikum tengdum jógatímum eða einhverju þess háttar....því miður lesandi góður þá var það bara svona one time thing, enda hef ég ekki farið aftur eftir það......
Ég er bara aðeins of eirðalaus akkúrat núna og nenni ekki að lesa fleiri greinar og hvað þá skrifa um leiðindar efni tengt ritgerðinni þannig að ég ætla bara að pirrast aðeins í þér....
Kv Gerður Rún
Þá erum við loksins komin í smá frí ef frí skal kalla. Við erum sem sagt ekki á leiðinni heim í sæluna heldur bíður okkar mun skemmtilegra verkefni hér….ritgerðasmíð. Ég verð nú að segja að þetta er nú allt að blessast ágætlega, hjá mér allavega, það er að segja hvað varðar ritgerðarefnið: Analysis of Structured bonds. Fyrstu fannst mér þetta frekar dulll en svo fór ég að lesa alls konar skýrslur og greinar og veistu þetta er bara nokkuð athyglisvert…..er að reyna að sjá allavega eitthvað jákvætt við það sem ég er að fara að eyða páskafríinu í J
En að allt öðru, í október í fyrra festi ég kaup á tölvu hérna í DK bara þessi fínasta tölva eða svo ég hélt…ný hp vél, nett og sæt. Ég ákvað að festa líka kaup á auka tryggingu svona just in case því að gæinn í búðinni sannfærði mig um að það borgaði sig algerlega, ef ég missti tölvuna og hún skemmdist þá fengi ég glænýja…bara flott mál….síðan þá eru búin að vera eintóm vandræði með hana. Á fimmtudaginn fer ég svo með tölvuna í þriðja sinn síðan hún var keypt því að skjárinn var dottinn út í annað sinn….meiriháttar og ritgerðaskil eftir 3 vikur. Ég lendi á þessum líka mesta yndi af manni (sölumanni á ég nú við….) hann hringdi nokkur símtöl og sagði svo, ég ætla að láta þig hafa nýja tölvu….þó svo að trygging gilti bara ef ég kæmi með tölvuna 3 sinnum út af sömu biluninni (helv….smáa letur alltaf hreint). Anyways, þar sem þeir áttu ekki á lager alveg sömu vél og ég átti þá splæsti hann bara í stærri, nýrri, flottari og töluvert dýrari vél handa mér í staðin J ekki slæmt það.
Í kvöld erum við að fara í matarboð til Margrétar og Helga, allt of langt síðan við höfum hitt það sæta par, þannig að það verður gaman að catch up í kvöld.
Ég veit að það er ekki búin að vera nein uppfærsla á myndasíðunni og það er ástæðan fyrir því, mér tókst sem sagt að taka bara hleðslutækið af myndavélinni með mér til baka um jólin þannig að myndavélin varð eftir. En við vorum að fá svaka flottann paka að heiman og þar á meðal var myndavélin þannig að ég lofa að vera dugleg að taka myndir og henda þeim inn. En aftur að pakkanum, við fengum svakalegar kræsingar sendar í stærðarinnar pakka í gær, cheerios, pítusósur, pylsur, hangiálegg og síðast en ekki síst páskaegg….algerlega ómissandi. Reyndar er varla hægt að segja að þetta hafi verið mikið egg þegar það kom á leiðarenda en súkkulaði var það þó og það er það eina sem skiptir máli hehehe…..Takk kærlega fyrir okkur
kv Gerður Rún