19. desember 2007 klukkan 15:30
Já, eins og flestir vita þá erum við á íslandi núna og verðum hér/þar um jólin. Þannig að það er bara um að gera og slá á þráðinn, erum bæði með okkar venjulegu íslensku númer til afnota :D Við ætlum okkur ss. ekki að blogga í jólafríinu heldur bara njóta þess að vera hérna. Það verður kannski bloggað ef eitthvað rosalega merkilegt gerist, efast samt um það.
Jæja stutt og hnitmiðað kv.Davíð |
|
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
08. desember 2007 klukkan 13:19
Nú er búið að líða allt allt of langt síðan síðast, þið verðið nú að viðurkenna við erum nú búin að standa okkur töluvert betur en í fyrra, þá voru einu kommentin sem við fengum í bögg-formi “fariði að blogga druslurnar ykkar” og eitthvað í þessum dúr….hehe neinei kannski ekki alveg en þið skiljið hvað ég meina J
Anyway….það sem hefur drifið á daga okkar þessar síðustu tvær vikur hefur verið nokkuð fjölbreytt, skólinn er svo sem bara búinn að ganga sinn vanagang, verkefna skil og same old same old skólalíf…síðustu helgi var svo breytt til og Margrét og Gunni það elskulega par kíkti yfir í borgarlífið og við upplifðum jólastemninguna á Strikinu saman þegar það var kveikt á “himninum” yfir strikinu…svaka kósý og jólalegt vantaði samt eiginlega smá snjó alveg til að toppa þetta….en það er ekki hægt að fá allt…..Það var æðislegt að fá þau í heimsókn næst kannki verðum við að hafa meira kaffi í boði fyrir Gunna svo hann haldi út allt kvöldið heheheJ Eftir að þau héldu heim komu næstu snillingarnir Tinna og Villi, við elduðum, spjölluðum og spiluðum alltaf jafn gaman að fá þau. Eftir að við hjú vorum bara tvö eftir í kotinu var dustað rykið af bókunum og hent sér í lærdóm enda ÓTRÚLEGT hvað lítið er eftir af skólanum….getur einhver sagt mér hvert tíminn fer eiginlega……
Á fimmtudaginn var svo lyft sér upp og farið á Julefrokost í skólanum, ég fór í fyrirparty til Johanne en Davíð fór með strákunum til Tomasar síðan var haldið niður í skóla. Á boðstólum var hefburndinn danskur jólamatur, í forrétt var rúgbrauð, síld, pasta með rækjum og karrý gums…svo var borið á borð nokkrar kjötbollur og kæfa….eins og okkur göltunum sæmir þá héldum við að um meiri forrétt væri að ræða og tókum ekki eins vel til matarins….spara okkur fyrir aðalréttinn….en nei that was it!!!…..svo kom bara ri á la mande (hrísgrjónagraut) í eftirrétt og við vorum frekar svekkt….við erum nú meiri geltirnir. Eftir matinn var svo haldið í klubbinn og dansað af sér rassinn….rosa gaman en alltaf jafn ógeðslega heitt þarna inni.


Það sem er nú framundan hjá okkur er leikur hjá mér á morgun…hörkuleikur toppliðanna, seinnipartinn á morgun er svo Olga væntanleg, mikið búið að bíða eftir þessum degi J Síðan er það bara venjuleg loka stressandi skólavika þar sem allir kennararnir að reyna að troða inn því efni sem eftir á að fara yfir….svo ætlum við að fara í gamlabæinn með tengdó og kíkja á jólastemninguna þar, versla svolítið af jólagjöfum og svo er bara komið að því að koma heim….6 dagar í heimkomu í dag….JIBBÝ ég get ekki beðið eftir því að koma heim og knúsa alla friends and family…..úfff löngufarin að sakna allra allt allt of mikið.
Jólin koma jólin koma .......ég er búin að setja inn fleiri myndir.......
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson