31. desember 2006 klukkan 21:03
Við viljum bara óska öllum gleðilegra jóla og megi hið nýja ár sem er senn að ganga í garð, taka á móti öllum með fagnandi hendi. Kannski að maður hripi niður það hlesta sem hefur gerst á þessu ári:
Við hjúin vorum ekki í skóla í byrjun árs, vorum bara í gleðinni að vinna. Við skelltum okkur til Danmerkur í febrúar að skoða aðstæður í Kaupmannahöfn, líkaði vel en fórum ekki þangað. Svo komu páskar,við sóttum um í árósum, handboltinn kláraðist, fótboltinn byrjaði, Grótta drullaði upp á bak í boltanum, skelltum okkur til London, við komumst inn í skólann í ásrósum, fórum til eyja í mestu stemmningu sem við höfum upplifað, fluttum út til Danmerkur þann 15. ágúst, vorum hjá Sigga frænda hennar Gerðar og Hröbbu (hans Sigga) í sex vikur, fengum íbúðina okkar í árósum 1.okt., Einar (tengdó/pabbi) kom í heimsókn, Olga (tengdó/mamma) og ívar bróðir komu líka, kynntumst slatta af yndislegu fólki (tel upp þá helstu: Ósk og Elvar, Atli, Margrét og Helgi, Gestur og Eyrún, svo einhver danakvikindi), skiluðum verkefnum, komum heim, borðuðum mikið.
Jæja, svona var okkar ár í fremur stuttu máli, en það þarf ekkert að vera að flækja þetta. Við erum kannski að gleyma einhverju, þið bætið því þá bara við ;)
Enn og aftur gleðileg jól og godt nyt år.
Davíð Ingi og Gerður Rún
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
20. desember 2006 klukkan 21:40
ég er búinn að vera að brosa hringinn síðustu 2 mánuði eða svo, vegna að þess að það er svo langt síðan að Ágúst bróðir og Eva kærastan hans sögðu okkur Gerði að þau ættu von á barni. Já, mamma og pabbi eru að verða amma og afi (bara engin gleði á þeim bænum) Ágúst bróðir að verða pabbi, ekkert nema snilld. Ég að fara að eingast eitt stk. frænda/frænku :) ég er ekkert smá ánægður gutti. Þetta er kannski það helsta sem ég mun skrifa um í þessari færslu, jú og vill bara koma því að, að veðrið hérna er algjör horbjóður, mér skilst að það sé bara glampandi sól í árósum í dag, 20.des, eins eðlilegt og það er, en hérna er það bara óveður, skipastrand og flóð auk aurskriðna og ófærðar. Jæja, hlakka til að sjá alla, búinn að hitta slatta en á helling eftir (skemmtileg skrif, ég er að missa mig í gleði).
Takk í bili,
Davíð Ingi
p.s. það er hægt að fara inn á síðuna hjá Ágústi bróður og sjá sónarmynd af erfingjanum, slóðin er www.salin.blogspot.com
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
18. desember 2006 klukkan 05:25
Ójá það er rétt, við erum komin heim, viku áður en við sögðumst ætla að gera. Við gerðum þetta aðallega til þess að koma foreldrum okkar á óvart og my god hvað það tókst. Við byrjuðum á því að fara í vinnuna til mömmu og ég faldi mig bakvið Ágúst bróðir og skoppaði síðan fram og spurði mömmu hvort hún sé búin að kaupa rjúpur fyrir strákinn. Ég veit ekki hvert hún ætlaði, hún reyndi að segja eitthvað en það kom bara ekkert út og svo grét hún bara gleðitárum ;) Þar á eftir fórum við upp á spítala til pabba, þar sem Ívar bróðir var í heimsókn líka. Við komum inn og þeim brá ekkert smá við það að sjá okkur, bara gaman. Þegar við vorum búin að kíkja á foreldra mína (Davíðs) þá skelltum við okkur vestur í bæ til að koma tengdó (Einari og Dóru) á óvart......en það var enginn heima hehe. En við fréttum af Dóru í vinnunni þannig að við fórum þangað og hún er hávær fyrir en vaaaaaá, hún hækkaði um 100 desibil við það að sjá grímurnar á okkur :) eftir það þá settumst við bara í sófann í sörlaskjólinu og biðum eftir Einari sem kom stuttu síðar. Ég held að það hafi tekið hann svona 20 mín. að átta sig á því að við værum komin, það heyrðist alltaf reglulega innan úr eldúsi: "Hehehe litlu læðupúkarnir ykkar hahahaha". Þannig að nú erum við bara að fara að læra á daginn og eyða kvöldunum með vinunum þar sem við erum að fara í prófin okkar í janúar. Þannig að það þýðir ekkert að hringja í DK númerin núna ;)
Jæja bara svona láta vita, get ekki beðið eftir að hitta alla !!!!
Kveðja Davíð
P.S. Það er búið að koma upp King size rúmi inni í mínu herbergi fyrir kallinn, talandi um þjónustu.
Og já, afsakið blekkinguna :) kemur kannski fyrir aftur......
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
11. desember 2006 klukkan 20:52
Það er óhætt að segja að við hjúin erum með óendanlega þolinmæði....annað er ekki hægt þegar unnið er að IT verkefni með píu frá Bulgaríu....ó já hún er sko ekkert lítið hörð reyndar alveg skiljanlegt þar sem hún er búin að alast upp í Bulgaríu með mömmu sinni því pabbi hennar yfirgaf þær þegar hún var lítil svo er hún búin að vera að halda mömmu sinni á floti með því að senda pening alltaf heim það er því óhætt að segja að hún er búin að ganga í gegnum margt. Samt er nú hægt að stylla öllu í hóf þegar kemur að stjórnsemi og "frekju" bæði þegar kemur að hópavinnu og svo bara life itself...sem dæmi þá þarf hún alltaf að hitta og samþykkja mennina sem mamma hennar er að deita, við erum að tala um að hún var gift einum manni fyrir nokkrum árum sem vinkona okkar var ekki að fýla neitt sérstaklega vel þannig þegar leið á þannig að hún skipaði mömmu sinni að skilja við hann....hún þurfti hreinlega að velja á milli hennar og hans...eftir að hún skildi við hann flutti vinkona okkar að heiman til Þýskalands og skildi hana bara eina eftir....soldið spes segi ekki meir.
Nú eru örugglega allir komnir með meira en nóga af því að lesa um ekkert annað en IT verkefnið okkar á þessari blessaðri síðu og því er hérmeð hætt 
Annað að frétta er kannski bara að ég var að spila í gær, gekk bara nokkuð vel unnum leikinn með einu marki, en ég átti meira að segja sigurmarkið það er alltaf gaman. Næsti leikur er ekki fyrr en í janúar þannig að næst á dagskrá er að fara að koma sér heim og æfa með Gróttu, er farin að hlakka ekkert smá til. Það fer víst ekkert framhjá neinum að við erum ekkert lítið spennt yfir því að koma heim...12 dagar í heimkomu í dag 
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
07. desember 2006 klukkan 02:48
BLOGGI ! Það sem er búið að vera í gangi:
Gerður er búin að spila 3 leiki með Skovbakken, 2 sigrar og eitt tap. Hún stóð sig bara mjög vel :)
Ég er enn að bíða eftir að geta farið að spila með strákunum, það er víst eitthvað vesen með að faxa þessum félagaskiptum. En maður ætti að vera reddí í byrjun janúar, þá ætti líka liðið að batna til muna þegar tveir íslendingar detta inn í liðið, Atli er líka að bíða eftir sínum félagaskiptum :D
Það er allt brjálað að gera í skólanum, verið að fara yfir öll þau blessuðu atriði sem þarf að fara yfir fyrir prófin í janúar. Svo er reyndar svolítið fyndið eins og með hagfræðina, þar sem við tökum bara eitt stórt próf í júní úr öllu sem við höfum lært, rekstrar-, þjóð- og lýsandi hagfræði og við erum að klára rekstrarhagfræðina núna og hann segir bara gleðileg jól og gangi ykkur vel í sumar......frekar sjeikí sko. Ekki alveg að dansa....
Svo má alveg nefna julefrokostinn hjá bekknum okkar sem var haldinn síðasta laugardag. Um 4 leytið fengum við nokkur ungmenni í heimsókn og aðeins "hitað" upp. Svo var haldið niður í skóla í betri fötunum þar sem boðið var upp á, ég segi nú ekki dýrindis mat, en það var alveg hægt að koma þessu niður ásamt því að karlkyns nemendur bekkjarins keyptu margir hverjir snapps flöskur sem voru látnar ganga á milli. Mjög skemmtilegt kvöld og meira að segja Gerður bauð sig bara fram til að taka þátt í einhverjum leik sem reyndist bara hina fínasta skemmtun að fylgjast með. Svo var haldið á Klubben sem er háskólabarinn og þar var sko dansað, reyndar mest Gerður þar sem annar olnboginn minn var mest megnis við eikarenda......;)
Þá er það kannski síðasta sem skal nefna að við erum byrjuð á síðari hluta IT verkefnis okkar sem skila þarf inn fyrir 18.des. Það er að taka mest allan okkar tíma þessa dagana en gengur vel. Eitt ágætlega skondið atriði sem átti sér stað í dag, við erum komin með eins búlgarska í hópinn okkar + þessa kínversku sem var til staðar fyrir. Þær hittust í fyrsta skipti í dag þar sem þessi kínverska er ekkert alltof aktív og hafði ekki mætt í gær og í fyrradag. Það hefur oft verið sagt að fólk frá austur evrópu sé semi blóðheitt og það má alveg segja það, það var svona semi catfight í dag, sú búlgarska lét alveg heyra í sér.....semi fyndið.
Jæja þetta er orðið aðeins og langt,
það styttist í að við komum heim.......16 dagar ;)
Davíð
p.s. myndir af julefrokost-num fara að koma inn
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson