07. desember 2006 klukkan 02:48
BLOGGI ! Það sem er búið að vera í gangi:
Gerður er búin að spila 3 leiki með Skovbakken, 2 sigrar og eitt tap. Hún stóð sig bara mjög vel :)
Ég er enn að bíða eftir að geta farið að spila með strákunum, það er víst eitthvað vesen með að faxa þessum félagaskiptum. En maður ætti að vera reddí í byrjun janúar, þá ætti líka liðið að batna til muna þegar tveir íslendingar detta inn í liðið, Atli er líka að bíða eftir sínum félagaskiptum :D
Það er allt brjálað að gera í skólanum, verið að fara yfir öll þau blessuðu atriði sem þarf að fara yfir fyrir prófin í janúar. Svo er reyndar svolítið fyndið eins og með hagfræðina, þar sem við tökum bara eitt stórt próf í júní úr öllu sem við höfum lært, rekstrar-, þjóð- og lýsandi hagfræði og við erum að klára rekstrarhagfræðina núna og hann segir bara gleðileg jól og gangi ykkur vel í sumar......frekar sjeikí sko. Ekki alveg að dansa....
Svo má alveg nefna julefrokostinn hjá bekknum okkar sem var haldinn síðasta laugardag. Um 4 leytið fengum við nokkur ungmenni í heimsókn og aðeins "hitað" upp. Svo var haldið niður í skóla í betri fötunum þar sem boðið var upp á, ég segi nú ekki dýrindis mat, en það var alveg hægt að koma þessu niður ásamt því að karlkyns nemendur bekkjarins keyptu margir hverjir snapps flöskur sem voru látnar ganga á milli. Mjög skemmtilegt kvöld og meira að segja Gerður bauð sig bara fram til að taka þátt í einhverjum leik sem reyndist bara hina fínasta skemmtun að fylgjast með. Svo var haldið á Klubben sem er háskólabarinn og þar var sko dansað, reyndar mest Gerður þar sem annar olnboginn minn var mest megnis við eikarenda......;)
Þá er það kannski síðasta sem skal nefna að við erum byrjuð á síðari hluta IT verkefnis okkar sem skila þarf inn fyrir 18.des. Það er að taka mest allan okkar tíma þessa dagana en gengur vel. Eitt ágætlega skondið atriði sem átti sér stað í dag, við erum komin með eins búlgarska í hópinn okkar + þessa kínversku sem var til staðar fyrir. Þær hittust í fyrsta skipti í dag þar sem þessi kínverska er ekkert alltof aktív og hafði ekki mætt í gær og í fyrradag. Það hefur oft verið sagt að fólk frá austur evrópu sé semi blóðheitt og það má alveg segja það, það var svona semi catfight í dag, sú búlgarska lét alveg heyra í sér.....semi fyndið.
Jæja þetta er orðið aðeins og langt,
það styttist í að við komum heim.......16 dagar ;)
Davíð
p.s. myndir af julefrokost-num fara að koma inn
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
26. nóvember 2006 klukkan 21:48
Mér fannst bara tilvalið að láta ykkur vita að ég var að fá bréf frá skurðlækninum sem tók "nibbann" minn, en eftir aðgerðina var nibbinn var sendur í ræktun og út úr því kom að þetta væri allt í besta lagi og því engin þörf á frekari rannsóknum þar sem um væri að ræða "normal skin". Þá get ég loksins hætt að hugsa um þetta

Við skrippum til Horsens á föstudagskvöldið til Gunna og Margrétar, ekkert smá gaman hefðum getað setið alla nóttina og spjallað....þau eru búin að koma sér rosalega vel fyrir ekkert smá kósý hjá þeim. Hlakka til að fá þig hingað út skvís í janúar það værður æðislegt !!
kv Gerður Rún
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
24. nóvember 2006 klukkan 16:20
Lítið er búið að drífa á daga okkar undanfarið nema bara að læra, læra og læra meira....vorum að skila inn Statistics hand-in í dag ásamt hand-inni í Bookkeeping, í vikunni þar áður var hand-in í stærðfræði og Cost Operation Supply Chain Management massa stuð...Svo í næstu viku byrjum við á seinni hlutanum í lokaverkefninu okkar í IT og þá verðum við reunited með vinkonu okkar frá Kína....
Við erum bæði búin að vera að mæta á æfingar og standa okkur bara nokkuð vel....já ég veit að ég átti ekki að fara á æfingu strax en hendin er öll að koma til og ég fékk leifi frá hjúkku til að fara á æfingu svo lengi sem ég teipa hendina þannig að ég geti ekki rétt úr henni. Ég var beðin um að mæta í leik á þriðjudaginn, miðvikudaginn og laugardaginn í næstu viku, talandi um að rumpa leikjunum af...soldið spes... en á æfingunni í gær þá leit allt út fyrir að ég verði bara í byrjunarliðinu, verst bara að spilformið er ekki alveg upp á sitt besta en það er samt allt að koma. Ég hlakka ekkert smá til að fara að spila búin að bíða eftir þessu síðan í byrjun apríl.
Í kvöld erum við svo að fara til Horsens sem er rétt fyrir utan Árósar, en þar býr Gunni unnusti Margrétar Rósar og ætla þau að bjóða okkur hjúum í mat, ekki veitir af þar sem það er nú e-d takmarkað til í búinu hehe...segi svona. Það verður ekkert smá gaman að hitta þau, það er alltaf hægt að treysta á Margréti til að fræða mann um alls slúðrið sem maður er að missa af heima 
Gott í bili
kv Gerður Rún
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
19. nóvember 2006 klukkan 01:40
Það ríkir þvílík gelði hérna hjá okkur í Skejbytoften 111, ég fékk nefnilega rafrænan póst á fimmtudaginn frá
the Dean of Education at ASB on behalf of the Rector, í þessu bréfi sagði hann að stjórn skólans ásamt rektor gæti ekki hunsað beiðni okkar um færslu á stærðfræðiprófinu sem sett var þann 2.jan. Þar sem okkur voru gefnar rangar upplýsingar við setningu skólans í sept. Sem þýðir ekkert nema gleði fyrir okkur og það að við verðum á íslandi til 4.janúar í stað þess að þurfa að fara aftur til DK þann 30.des. Vúhú ! Þegar við fengum þessar fréttir þá vissi ég ekki hvert Gerður ætlaði, hún var ekkert lítið glöð ;)
Það er kannski ekkert nýtt af okkur að segja annað en að Gerður er að gróa vel saman :D og gleðifréttirnar hérna að ofan. Maður er ekki lítið að láta sig dreyma um jólin þessa dagana, hvað verður gott að geta legið í semi leti og etið góðan mat..... Ég er reyndar búinn að gera smá lista yfir það sem ég ætla mér að fá mér að borða þegar ég kem heim og það fyrsta er að fara á búlluna og fá sér einn rosalega sveittan og íslenskt kók, svo fá sér Dominos Pizzu í kvölmatinn og skella sér síðan í ísbúðina á hagamel um kvöldið. Þarna er amk kominn einn dagur, svo einhvern annan daginn verður maður að fá íslenskt lamb, það er víst ekki til mikið af lambi hérna, og það sem er til er bara vont og óge..... dýrt. Þannig að það verður að vera þarna einhvers staðar inni á milli hátíðarmáltíðanna.
Jú maður hefur nú smá fréttir, strákurinn er byrjaður að æfa handbolta, skellti mér á æfingu um daginn, ekkert lítið gaman en ég var líka gjörsamlega búinn eftir æfinguna. Ekki nóg með það að fá 6 blöðrur á hægri þá gat ég varla hreyft mig daginn eftir vegna harðsperra um allan líkamann, maðu er kannski ekki alveg búinn að vera að halda sér í formi. Þeir voru bara nokkuð sáttir við frammistöðuna á æfingunni, vilja endilega sjá meira og það er nú ekkert leiðinlegt við það. Gott að vera loksins kominn í aksjón aftur eftir langa fjarveru. En hverju getur maður svo logið meiru að ykkur....uuuuu.....jú, Gerður er að verða vitlaus yfir því að komast ekki á æfingu en það fer að styttast, hún er að spá í að skella sér á þriðjudaginn. Þannig að það er allt að gerast hérna hjá okkur skötunum. En ég verð samt að segja ykkur frá einu, við voru í fríi í skólanum á fimmtudaginn og vöknuðum um 11 leytið eða svo. Svona meðan maður var að skríða frammúr og fá sér morgun-/hádegismat þá kveikti ég á sjóvarpinu og næst á dagskrá var skolefodbold finale (ss. skólamót í fótbolta, úrslit hjá strákum og stelpum). Við misstum okkur úr hlátri, ekki það að það var verið að sýna frá þessu.....jújú ég er líka að sjá stöð 2 fara að sýna frá úrslitum Garðaskóla og Valhúsaskóla í skólafótboltamóti 9.bekkjar.....heldur að þetta var á Parken og það voru svona 20 myndavélar á vellinum og maður gat séð skotin, sóknirnar frá 20 mismunandi sjónarhornum. Tek það fram aftur að þetta var 9.bekkur og þau gátu ekki rassgat í fótbolta, bara fyndið. Svo voru bara viðtölin við fyrirliðana og þjálfara fyrir og eftir leik. Mér finnst að Eggert Magnússon ætti að beila á West Ham kaupunum og fjárfesta í skólafótboltanum í staðinn.....
Eitt að lokum, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU VIGGÓ MINN........og já þú ert orðinn gamall ef þú ert að spá í því ;)
Hef ekkert meira í bili
kv. Davíð
P.S. Gerður er orðinn soldið pirruð á að það kommentar enginn á færslurnar þannig að í guðanna bænum viljiði kommenta svo að heimilislífið hafi sinn vanagang :D
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
12. nóvember 2006 klukkan 16:20
Eins og ég sagði í síðustu færslu þá fór ég í þessa blessuðu aðgerð á fimmtudaginn og gekk allt bara mjög vel held ég. Mér leið reyndar eins og ég hefði fengið massíva handlyftingu því það er búið að strekkja ekkert smá á húðinni á hendinni á mér, ég þarf allavega ekki að hafa miklar áhyggjur af hrukkum í bili á vinstri hendinni. Ég fékk þau fyrirmæli að ég ætti ekki að reyna of mikið á hendina ekki vera að rétta úr henni og ekki láta sólarljós fara á þetta í heilt ár, ég verð sem sagt alltaf mega flott með plástur yfir þessu á ströndinni, alltaf töff að vera með auka far hehe... En eftir þetta fékk ég allra best fréttirnar....eins og ég sagði í fyrri færslunni þá er ég að springa úr gleði yfir því að vera farin að æfa handbolta aftur en nei núna má ég ekki rétta neitt úr hendinni og læknirinn sagði að ég mætti ekki fara á æfingu fyrr en eftir MÁNUÐ!!!!! ég trúi þessu ekki......ég trúi ekki að ég er aftur að fara í einhver leiðindar útihlaup í kuldanum hérna...ekkert smá ósátt. Ég er mikið búin að pæla í því hvernig ég get reddað þessu samt, datt fyrst í hug að kaupa svona hlíf sem kemur í veg fyrir að maður yfirspenni olbogann þá get ég allavega ekki rétt úr hendinni en svo get ég auðvitað bara teipað þetta, veit samt ekki hvað ég þori að gera í þessu allavega fyrstu tvær vikurnar sérstaklega þar sem ég finn svolítið til í þessu núna en það á auðvitað eftir að minnka.
Á föstudaginn fengum við svo heimsókn, Hera og Jordi komu til okkar og það var ekkert smá gaman að hitta þau. Við tókum röltu í miðbænum og fórum svo og versluðum inn og Davíð eldaði indverskan kjúklingarétt með hrísgrjónum og nanbrauði ekkert smá gott. Eftir að hafa fegnið allt slúðrið að heiman og búið var að spjalla um allt og ekkert var ákveðið að kenna hjúunum aðalteningaleik Dana sem heitir Mayer, það er frekar flókið að útskýra hann með orðum þannig að við verðum bara að kenna ykkur hann þegar við komum heim um jólin. Þau héldu svo aftur til Köben á laugardagsmorgun , þetta var stutt stopp í þetta skiptið en ótrúlega gaman að sjá þau
Gott í bili
kv Gerður Rún
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
08. nóvember 2006 klukkan 03:21
Ekki mikið hefur drifið á daga okkar hér í Danaveldi frá því við skrifuðum síðast, nema það að ég er loksins búin að ná sambandi við þjálfarann hjá SK Aarhus og Skovbakken (2.liðið hjá SK). Ég er búin að vera að hárreyta mig undanfarna viku þar sem ég er alveg komin með leið á handboltaleysi, útihlaupum og ljósastaurasprettum....og ekki nóg með það heldur var ég búin að senda þeim báðum mail en var ekkert búin að heyra í þeim og það var liðin rúm vika...hvað er málið. Mér var ekki farið að lítast á þetta...ef þeir vilja ekki að ég komi hvernig væri þá bara að vera með smá bein í nefinu og svara mailinu og segja það þá. En annað kom í ljós loksins í dag. Jesper, þjálfarinn í SK, sem ég var í bandi við í sumar, sendi mér sms segjandi að hann hefði verið að sjá mailið fyrst núna þar sem þetta var gamla mailið hans....allavega til að gera langa sögu stutta þá var ég að koma af æfingu með 2.liðinu og það var ekkert smá gaman, loksins er kláðinn í fingrunum farinn og í staðinn er ég að skrifa þetta blogg með plástra á fjórum fingrum hægri handar, ekkert smá stórar blöðrur.
Á fimmtudaginn er ég svo að fara í smá aðgerð á spítalanum hér í Árósum. En fyrir þá sem ekki vita þá er ég búin að vera með smá "nibba" á hendinni sem ég lét taka af daginn áður en við fluttum út. Nibbinn var sendur í ræktun og í ljós kom að það væri víst eitthvað í gangi í þessu frumubreytingar eða eitthvað í þá átt en víst ekkert sem átti að hafa OF miklar áhyggjur af. Þessar fréttir fékk ég þegar við vorum komin út og þurfti ég því að fara til heimilislæknis hérna úti svo að hann sendi beiðni til sérfræðings. Ég var bara nokkuð róleg yfir þessu þangað til ég fór til hans, hann var mjög svo slappur í ensku og það eina sem hann gat sagt við mig var "cancer", "skin cancer" og "tumor" en var samt alltaf að reyna að róa mig en það var ekki alveg að gera sig. Eftir þetta fór ég svo til sérfræðings sem var álíka slakur í ensku og tók sama pakkann á þetta. Fjórar vikur liðu og ekkert var komið um aðgerðina, en allt hér í DK fer allt í gegnum bréf, já gamaldags bréfaskriftir. Loksins kom bréfið í síðustu viku segjandi að ég eigi tíma í aðgerð á fimmtudaginn kl 13:45. Davíð þarf víst að koma með mér til að koma mér heim þar sem ég má ekki keyra bíl og eitthvað fleira sem ég skil ekki alveg því auðvitað er bréfið á dönsku. Þessi nibbi verður líka sendur í ræktun og svo fæ ég væntanlega einhverjar fréttir um þetta næsta sumar ef þetta er í takt við allt annað ....það er ótrúlegt hvað allt tekur langann tíma hérna.
Svo eru Hera og Jordi að koma í heimsókn eftir nokkra daga, við getum ekki beðið...það verður geðveikt gaman :)
Jæja komið gott í bili
p.s Við erum búin að setja inn nokkrar nýjar myndir og já eitt í viðbót Karen kíkti í mat til okkar hún lítur ekkert smá vel út og það eru líka nokkrar myndir líka af því.
kv Gerður Rún
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
06. nóvember 2006 klukkan 21:20
Það er kominn tími á skrif, það er slatti búinn að gerast síðan síðast og ber þar hæst að nefna bíóferð, tuborg julebryg-ið kom út á föstudaginn og svo próftaflan.
Við ákváðum að skreppa í bíó á fimmtudaginn með Petru (stúlka frá kanada) og Margréti. Tekin var ákvörðun að fara á BABEL með Brad Pitt og Cate Blanchett, kommon þetta er Brad Pitt, myndin hlýtur að sleppa.....6 stjörnur einhvers staðar og læti. Það fór ca. tveir og hálfur tími í þessa mynd og það er bara tími sem ég mun aldrei fá aftur, þetta var ábyggilega mesta tímasóun sem ég hef upplifað á minni stuttu ævi. Ég hef gert margt sem mætti flokka undir tímasóun en það að sjá þessa mynd er það versta sem ég hef gert síðan ég kom hingað. Ég kom út og ég vissi bara ekki hvað ég átti að segja, það var hægt að sýna þessa mynd á 20 mínútum en ekki helv.... tveimur og hálfum tíma 
En að öllu skemmtilegra efni, við Gerður skiluðum inn hluta af lokaverkefninu okkar í IT á föstudaginn, við eigum síðan eftir að byggja ofan á það í desember og verja það í janúar. Það var ekkert lítið gott að koma þessu verkefni frá. En svo á föstudagskvöldið þá hittumst við heima hjá Margréti og Helga, ásamt Petru, Elvari og Ósk og biðum eftir að Tuborg-julebryg-ið kæmi á krana í fyrsta skiptið fyrir jólin. Þessi viðburður er víst þvílík hefð hérna í DK, því nákvæmlega kl. 20.59 má fara að selja bjórinn, en það var samt verið að gefa hann út um allt líka. Við lentum því miður í því að vera boðin um borð í Tuborg rútu sem keyrði um bæinn. Við komum inn í rútuna og þá var okkur rétt einn ískaldan julebryg og svo var farið af stað. Í rútunni fengum við ásamt brygginu einhverjar tuborg kollur á hausinn, svo var sunginn tuborg jólasöngurinn (með stefinu úr jingle bells), alveg drepleiðinlegt...einmitt. Eftir rútuferðina þá skelltum við okkur á XL sem er karókíbar við strikið og vorum þá búin að hitta Gest og Eyrúnu líka, þannig að það var kominn ágætishópur íslendinga á XL. Stelpurnar ákváðu að skrá sig niður á I will survive með Gloriu Gaynor og my god hvað það var rosalega mikil píning, þær voru held ég í keppni um hver söng hæst !!! Þegar þær voru búnar að syngja langaði mig bara að fela mig, þær nefnilega komu beint að borðinu þar sem við strákarnir sátum og það vildi held ég enginn kannast við þær....en þetta var samt mjög gaman allt saman og mikið hlegið þegar horft var aftur á þetta þar sem Helgi tók þetta "fíaskó" upp ;)
Þá er komið að skemmtilega hlutanum á þessari færslu, bara útaf því að hún er svo stutt. Próftaflan var birt í síðustu viku og eins og kannski flestir vita þá tökum við prófin okkar í janúar. Jújú allt í góðu með það nema hvað að við fengum að vita það að fyrsta prófið okkar er 2.janúar sem þýðir það að við getum ekki verið heima um áramótin, þar sem það er ekki flogið út þann 1.jan. Æðislegt
Við erum á fullu í að vinna að því að fá þessu breytt, en það lítur ekkert voðalega vel út eins og er. Jæja ég þarf að fara að gráta núna þannig að until next time......
Davíð
p.s. Við erum að henda inn myndum frá föstudeginum inn á netið...www.picturetrail.com/dg47
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
02. nóvember 2006 klukkan 19:55
Ef þú kíkir á einu myndina sem ég er búinn að setja í myndir hérna fyrir ofan og til vinstri en EKKI íbúðin og útsýni neðar til vinstri, sérðu hvernig dagurinn byrjaði hjá okkur í gærmorgun, snjór og brjálað veður. Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá var það í gær 1.nóvember sem við Gerður höfum verið saman í 3 ár. Avúhúú....Það var fyrir 3 árum sem, ég ætla nú ekki að fara að segja fórum að stinga nefjum okkar saman (það vita nú flest allir hvernig þetta byrjaði) heldur sem við ákváðum að binda okkur hverju öðru, alla vega í einhvern tíma

Við vöknuðum eins og fyrr segir við líka þetta skemmtilega veður, dúðuðum okkur upp og fórum í skólann. En fyrst þurftum við að bíða eftir strætónum sem var 10 mínútum of seinn, svo eftir ca. 5 mín í strætónum áttuðum við okkur á því af hverju hann var svona seinn. Það var einhver krakki sem bombaði snjóbolta í bussinn og bílstjórinn snarnegldi niður, opnaði litla kassann sinn, svo hurðina og fór út, þegar hann var loksins kominn út var krakkinn löngu farinn. Á meðan bílstjórinn var úti öskraði einhver gömul kjelling á eftir honum (bílstjóranum) "tidsplan, tidsplaaaaaan !!!!!!". Hún hafði alvag slatta að leggja til málanna því gaurinn var orðinn 20 mín. of seinn. Við misstum af okkar næsta strætó útaf þessu bíói.
En svona í tilefni dagsins þá vildum við Gerður gera okkur einhvern dagamun, þar sem við erum alltaf saman og borðum nánast á hverju einasta kvöldið saman við kertaljós (höfum ekki efni á að hafa ljósin kveikt

) þá ákváðum við að skella okkur bara út að borða með nokkrum íslendingum sem við erum búin að kynnast hérna, þeim Atla, Margréti, Elvari og Ósk. Það var alveg frábær skemmtun þrátt fyrir að hafa þurft að bíða eftir borðinu svolítið lengi. Aaa... verð að troða smá hérna inní varðandi matinn. Allir voru búnir að panta og fá matinn, en það voru bara 4 hnífapör á borðinu og við 6. Í heildina vorum við að borða 4 steikur og 2 pizzur. Okkur Gerði vantaði hnífapör þannig að strákurinn fór að redda þessu, að ég hélt. Ég bað um auka 2 hnífapör, en konan sagði bara nei. Ég var ekki alveg að fatta og sagði bara: What !!! hvað meinarðu? Það er sko bannað að borða pítsurnar með hníf og gaffli, þess vegna eruði bara með 4 hnífapör, ég ekkert ennþá að skilja og spyr hvað hún meini með því. Þetta eru bara reglur, var ykkur ekkert sagt frá þessu......nei eiginlega ekki. Á endanum fékk ég tvö auka hnífapör eftir að hafa verið þarna í einhverjar 3 mín að fá útskýringu fyrir þessu öllu saman. Endaði með því að Gerður notaði bara ekki hnífapörin og við skiluðum henni einu parinu til baka þegar við vorum að gera upp. Eftir matinn skelltum við okkur heim til Elvars og Óskar, með smá stoppi í 7/11 að ná í nokkra öl með leiknum (FCK-Man.Utd). Ekki neitt svakaleg úrslit í þeim leiknum, langaði bara ekkert að gráta. En þessi fínasti dagur var síðan á enda kominn og við skelltum okkur bara heim í Taxa, við nenntum ekki að standa úti í kuldanum að bíða eftir strætó.
Við skelltum inn örfáum myndum af veðrinu á myndasíðuna okkar hjóna, þannig að það er hægt að klikka á sama link hérna til hliðar til að kíkja á það.
Bless í bili
Davíð
p.s. Til hamingju með daginn í gær Stína....og Viggó til hamingju með konuna ;)
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
29. október 2006 klukkan 19:56
1) Við erum búin að setja inn nokkra myndir af íbúðinni og frá útsýninu sem við höfum undir tenglar, íbúðin og útsýni
2) Ég (Davíð) er kominn með nýtt númer hérna í DK það er 0045-31903056 þetta er svona á reikning kind of thing þannig að þetta ætti að vera ódýrara, ég fékk reyndar engu ráðið með þetta. Við Gerður fórum að versla eitthvað pínulítið inn um daginn og þegar við komum út þá var eitthvað fólk þarna að bjóða einhverja samninga frá símafyrirtækjum. Ég hélt bara áfram að labba og fór út í bílinn sem við vorum með í láni, en engin Gerður. Þegar hún kom til baka þá var hún bara búin að skipta um símafyrirtæki, ÉG þurfti að fá nýtt númer, HÚN hringir frítt í mig með sama númer en ég ekki frítt í hana. Maður fær aldrei að ráða neinu ;)
3) Það er víst búið að breyta klukkunni í evrópu, hún er farinn 1 klst. aftur á bak. Þá er munurinn bara 1 klst. á okkur og íslandi. Ég vaknaði í morgun (var reyndar vakinn upp) kl 11. Þegar ég kem fram segir Gerður að það sé búið að færa klukkuna, ég hélt að það yrði gert í nótt (aðfararnótt Mánudags) og þá mundi ég græða eins og einn tíma áður en ég færi í skólann í fyrramálið en neeeei þetta var víst í dag og ég græddi bara ekkert á því vegna þess að maður var rifinn á fætur klukkan 11. Sem sagt kl.10 og fékk ekki að fara aftur upp í rúm að græði eitt stk. klukkutíma. Súrt !

En ekki var það fleira í bili
Davíð
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
28. október 2006 klukkan 01:45
Það er óhætt að segja að haustið sé komið í Árósum en við vöknuðum við brjálað veður í morgun, rok, geðveika rigningu og engann smá kulda. Það var nokkuð freistandi að skríða aftur upp í rúm þar sem við áttum bara einn tíma kl 8 til 9:40.....en það þýðir víst ekki að treysta á að geta lært stærðfræði upp á eign spýtur þannig að við drösluðumst á fætur, dúðuðum okkur upp og hentum okkur út í "góða" veðrið. Það reyndist vera góð ákvörðun því að það hefði verið mjög slæmt að missa af þessum tíma.
Skólinn er alveg á góðu skriði núna vorum að skila inn ritgerð á síðasta föstudag og erum svo að fara að skila þessu blessaða lokaverkefni í Information Technology in Business (treystið mér þetta fag er janfleiðinlegt og það hljómar). Við Davíð erum saman í hóp ásamt einni stelpu frá Kína sem í fyrstu sýndist bara nokkuð ákjósanlegur einstaklingur fyrir hópavinnu en nei.....við eigum að skila verkefninu í næstu viku og hún býr í Kaupmannahöfn og fór þangað sem sagt yfir helgina og kemur kannski aftur í næstu viku. En við áttum ekki að hafa áhyggjur því hún sagðist alltaf vera á msn, hver vinnur hópaverkefni í gegnum msn (ein ekkert lítið pirruð) og viti menn það eru liðnir þrír dagar og ekkert bólar á henni á netinu. Það lítur allt út fyrir að við hjúin klárum þetta bara ein sem er líka bara í góðu lagi.
Við bíðum spennt eftur morgundeginum (laugardeginum) en þá ætlum við að setjast yfir tölvuna og horfa á Gróttu-stelpurnar taka Haukana í nefið, ég hef enga smá trú á þeim og er ekkert lítið abbó yfir því að vera ekki heima núna...hugsa oft til ykkar með miklum söknuði (það verður að vera smá væmni í þessu bloggi) mig dauðlangar svo að geta verið í Gróttu núna. En ég sendi þjálfaranum í Skovbakken mail í dag til að athuga hvort það sé séns á að koma að æfa með þeim aftur en ég neyddist til að "hætta" á meðan við bjuggum hjá frænda mínu í Harlev sem er soldið frá Árósum. Í heildina með því að taka strætó á æfingu vera á æfingu og fara heim var allt í allt 5 klukkutímar og stundum meira ,með skólanum var það ekki alveg að virka. Ég reikna með því að vera komin aftur á skrið í næstu viku, ég vona það allavega vegna þess að mig er farið að klægja svo í fingurgómana við tilhugsun um handbolta.
jæja segjum þetta gott í bili
kv. Gerður
p.s. það er alltaf gaman að fá sendann smá slúður pakka svo maður sé ekki alveg út úr korti þegar við komum heim
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson