Auglýsing

Hver?

  • Nafn: Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
  • Staður: Árósar

Upplýsingar

Gerður Rún Einarsdóttir
gerdurrun@hotmail.com
s: 0045 26622181

Davíð Ingi Daníelsson
hvad_er_malid@hotmailcom
s: 0045 31903056

Heimilisfang:
Herredsvej 60 C Lejl. 12
8210 Aarhus

HIVE síminn
s: 496-0789

Innskráningar kubbur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ha, er langt síðan að við blogguðum?

11. apríl 2008 klukkan 13:10
Okei, kominn tími á að tjá sig að einhverju leyti. Það er margt sem hefur drifið á okkar daga síðust vikurnar, þó má segja að ritgerðasmíð hafi tekið hva mestan toll. Við vorum eins og ALLIR ættu að vita að skrifa ritgerðir í fagi sem nefnist Seminar in Business Studies. Ég (Davíð) skilaði minni inn 25.mars og þurfti síðan að verja hana 2 vikum seinna eða nánar tiltekið í síðustu viku. Það gekk allt saman bara vel og vonast maður til að fá einkunn í samræmi við það. Gerður mun verja sína ritgerð á þriðjudaginn næsta og vona ég að hún eigi bara eftir að massa þetta.

Við skelltum okkur til Köben helgina eftir páska til að hitta Kvennó-stelpurnar mínar, þar sem þær ákváðu að kíkja til DK í tilefni að afmælinu hennar Siggu sem á heima í Köben. Við fengum húsaskjól hjá Oddi og Kristínu, en ég held að við hefðum ekki getað valið verri helgi fyrir þau að fá okkur, bæði að vinna á fullu en það reddaðist allt saman. Mjög fín ferð í heild sinni, gaman að láta sjá sig og sjá aðra. Við urðum vitni að því að vasaþjófur var að reyna að ræna eldri konu þegar við vorum að fara inn í strætó, einhver kona sem var við hliðina á henni sá þetta og öskraði að konunni að hann væri með hendina ofan í veskinu hennar og svo öskraði hún á þjófinn að hann ætti að drulla sér í burtu, allt mjög gaman ss. En já mikið fjör og mikið gaman. Við þurftum reyndar að fara mjööööög snemma heim með lestinni á sunnudagsmorguninn þar sem Gerður var að fara að keppa. Við ss. lögðum af stað kl.6 um morguninn og var ekkert nema fullt lið með okkur í lestinni. Svo þegar við vorum komin í Roskilde, kemur einhver gaur inn, mjööög ölvaður og virtist vera eitthvað laskaður, öskrar: Ég gerði þetta ekki, ég gerði þetta ekki. Svo koma nokkrir gaurar á eftir honum og reyna að rífa hann út úr lestinni. Hann kemur inn í vagninn hjá okkur og hendir sér á gólfið og heldur í stólpa sem er að heldur borðinu milli sætanna. Einhverjir gaurar eru að reyna að ná honum út en ekkert gengur. Gamall maður sem sat við hliðina á okkur Gerði stendur upp (by the way, algjör afi sko) og labbar að gaurnum, við höldum að hann ætli kannski að tala hann aðeins til, enn neeeeeei, hann sparkar í hausinn á stráknum sem liggur og allt varð kreisí í vagninum. Endaði með því að gamli fór aftur í sætið sitt og löggan þurfti að koma og fjarlægja strákinn. Síðan í næsta stoppi 20 mín. seinna (í Ringsted) kemur löggan aftur inn og labbaði leitandi um vagninn, stoppaði síðan hjá okkar röð og bað gamla um að koma með sér. Greinilega búið að kæra hann fyrir líkamsárás eða eitthvað. Ss. það er bara rugl að koma þarna á Sjálandið sko, betra bara að halda sig hérna á Jótlandi :P

Næsta mál á dagskrá er að það er búið að bóka far heim í sumar. Við munum koma að morgni 20.júní til Íslands, og við munum vera á klakanum til 1.sept. Þannig að maður ætti að ná smá tíma í gleðinni :D Vera á staðnum þegar Ívar og Helga eignast eitt stk. lítið kvikindi. Við byrjum í prófum 27. maí, á svona svipuðum tíma og allir heima á Íslandi eru búnir að vera að vinna í 2 vikur. Svo klárum við prófin 18.júní, gleði gleði gleði.

Og síðasta topic-ið er það að elskulegur litli bróðir minn á afmæli í dag, 11.apríl, hann er orðinn 22 ára litli strákurinn í fjölskyldunni. Þetta er bara rugl. Jæja, Ívar minn, til hamingju með daginn elskulegur :* svo vill maður nú líka kasta kveðju á Evu hans Ágústar sem átti nú ammæli 8.apríl, til lukku, svo er Ósk 24 ára á morgun, til lukku með það, svo eru ábyggilega endalaust margir sem eiga afmæli núna á næstu dögum, þá segi ég bara yfir höfuð til lukku ;)

jæja, ég held að þetta sé komið semi nóg í bili,
vonast til að það verði ekki langt í næstu færslu, Gerður segir þá kannski frá því að þær séu að komast upp í næstu deild fyrir ofan, þar sem þær unnu í gær með 9 mörkum og seinni leikurinn er á sunnudag. Þannig að þeim nægir að tapa með 8 til að komast áfram :D

jæja, búið í bili,
kv.Davíð
Gerður Rún Einarsdóttir og Davíð Ingi Daníelsson
Eva Margrét
 
hæ elsku krúllur
gaman að heyra að allt sé í orden:) ÆÐISLEGT hvað þið verðið lengi heima í sumar ég er sko að digga það!!!
þetta var engin smá ferð sem að þið fóruð í, díses maður ég þori varla að koma að heimsækja ykkur núna þar sem að ég verð að fara í þessa lest til að komast til ykkar;)
knús og kossar
Eva Margrét
11. apríl 2008 klukkan 14:23
það er nú eins gott að þú farir að láta sjá þig Eva mín, Gerður er farin að sakna ykkar allra ekkert smá, og það lendir á mér að reyna að skilja hana þegar hún er að tala ykkar yfirnáttúrulega mál ;)
11. apríl 2008 klukkan 21:22
SææLL.. eigum við að ræða eitthvað þetta Ghettó mar... ? en allaveganna takk fyrir afmæliskveðjuna og ég er bara að verða HEEELLL gamall mar:S hehehe on a jet plane og vitleysa... hehe en allaveganna til hamingju með afmælið ósk ef þú lest þetta :D en Davíð og Gerður þið gerið ykkur held ég ekki grein fyrir því hvað það skiptir okkur miklu máli að þið verðið hér á landinu þegar við Helga eignumst okkar fyrsta Kríli ekki kvikindi ;) hehe love you (K)
12. apríl 2008 klukkan 19:31
Já ég er líka mega ánægð með lengdina á þessu fríi :) Þetta sumar verður tryllt. Vonandi verðum ég og evurnar fluttar eitthvert miðsvæðis í litla sæta íbúð og bjóðum ykkur í kokteil og sushi alla daga. nammi, namm!!


Elsku Gerður! Ég sakna þín ekkert smá, það er svo allt, allt of langt síðan við sáumst síðast..... Get ekki beðið eftir að fá þig heim og knúsa þig!!

LOVE, MRS

ps: Davíð ég sakna þín líka ;)
13. apríl 2008 klukkan 09:50
takk Margrét ;)
13. apríl 2008 klukkan 14:10

Skrifa athugasemd