Slúffa þessu bíói!
góðar stundir,
kv.Davíð
p.s. við munum koma heim til Íslands 21.des og vera til 9.jan :)
Engin athugasemd

Það eru próf í gangi núna, maður er að verða eins og afturganga í framan og afturendinn er búinn að missa allan sinn kúlusjarma sem hann átti hérna um árið. En það að vera eins og afturganga ætti ekki að eiga við rök að styðjast ef tekið er tillit til eftirfarandi greinar http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/05/31/solrikasti_manudur_i_danmorku/ sem birtist á mbl.is í dag. Þetta er bara rugl. Maður verður alla vega að reyna að ná smá base-tani áður en maður kemur heim. Það styttist óðum í að við komum heim og tilhlökkunin er ekkert að leyna sér. Ekki nema 20 dagar í það að við munum heiðra ykkur á klakanum með nærveru okkar. Þegar við lendum á djöflaeyjunni sem skelfur víst bara 6 komma eitthvað á richter, þá eru liðnir nákvæmlega 5 mánuðir og 18 dagar frá því að við vorum þar síðast. Ef ég verð að vera hreinskilinn (ekki eins og einhver sé að biðja mig um það eeeeeen) þá er þessi tími búinn að vera alveg fáránlega fljótur að líða, sem er held ég jákvætt...... En sumarið á eftir að verða það besta í manna minnum held ég, maður á eftir að pína sig í einn tvo hittinga með lýðnum og sjá KR verða.......ekki neitt. Það er bara vonandi að veðrið verði eitthvað í svipan við það sem það var í fyrrasumar. En það vill oft verða að ef það er gott veður hérna í DK þá er það ekkert spes heima.....og þar sem það er spáð heitasta sumri í Evrópu í nærri 150 ár í sumar þá gæti þetta orðið eitthvað mis þar sem þessar spá ná aldrei yfir atlantshafið og inn á klakabúntið Ísland........neinei þetta verður fínt, Davíð stay positive.
Gerður liggur núna úti á svölum og er að lesa fyrir prófið sem er á mánudaginn (management accounting) og ég er að skirfa eitthvað bull inn á einhverja bloggsíðu til að staðfesta það fyrir lesendum þessarar síðu að eigendur hennar séu enn á lífi, eru þetta góð skipti.....? Tana eða halda áfram að rotna? Við höfum lokið við eitt stk. próf, og það var á þriðjudaginn síðasta, mjöööög svo leiðinlegt próf en ég held að það hafi bara gengið ágætlega. Ekki nema 4 kvikindi eftir og svo Í-S-L-A-N-D. Mjööööög jákvætt, mjööööög. Mjöööööög hverjum datt þetta orð í hug? Tekið frá dönum/norsurunum/svíunum eða......meget......mycket......eitthvað rugl.......useless pæling.......
Á morgun á Einar tengdó afmæli og því alveg við tækifæri að óska honum svo early til lukku með daginn, svo veit ég að það er verið að halda upp á afmæli litlu sætustu frænku minnar í dag, hennar Maríu Lífar. Það er ótrúlegt hvað hún er að stækka hratt, komin með eina tönn og læti. Svo sá ég hana á svona webcall á msn í gær og hún er farin að teygja sig upp í loft til að sýna hvað hún er orðin stór.......bara svona ef enginn er búinn að ná því á þessum skrifum þá sakna ég hennar smá :) Hún nær að fylla sitt fyrst ár núna á fimmtudaginn þeas. 5.júní. Maður er búinn að missa af aðeins ooooof miklu með hana, það er svona eitt af downsides af því að búa hérna úti......ekki það að mér líði eitthvað illa.......ég meina það er fínt að búa hérna.......hættið að reyna að sálgreina mig.....aaaaaaaaaaa!!!!!!
Jæja, ég verð víst að fara að halda áfram að morkna.......
Davíð
p.s. það er einhver lýður úti í garði að leika sér í fótbolta og drekka bjór og svona.........það ætti að banna gleði á meðan maður er í prófum........bless
Það er óhætt að segja að sumarið er sko komið í Árósum, hitinn er ekki búinn að fara niður fyrir 20°C núna síðustu daga og ekki grét hún tengdó nú það....Já hún Olga kom í heimsókn í litla kotið okkar í síðustu viku og fór frá okkur á fimmtudaginn. Hún fékk ekkert smá gott veður og er hún lifandi sönnun fyrir því sjálf....alveg massa kaffibrún...sjálf er ég farin að lyftast aðeins við allavega fell ekki lengur inn í vegginn, eins og staðan var orðin á tímabili...og Davíð bara same old same old þarf ekki heldur mikið til að verða eins og Spánverji (skyjiði biturleikann).
Það sem var á dagskránni á meðan fröken fix var hjá okkur var í stuttu máli: sólbað, versla, bjór, Den Gamle By, Sushi, Botaniske Have og hér kemur smá brot af því besta
Það sem er framundan núna er að loka sig inni, missa alla uppsafnaða brúnku og lesa lesa og lesa.....
Við erum komin með nýja myndasíðu eftir að hafa fengið athugasemd um að það væri ekki hægt að kommenta á myndirnar á picasa :)
Gott í bili
Gerður
Það sem hefur drifið á daga okkar hér í DK er nú ekki svo mikið, lífið bara gengur sinn vanagang. Ég var reyndar að verja mína ritgerð á þriðjudaginn og gekk það bara vonum framar, mikið stress og mikill skjálfti þegar maður stendur fyrir framan bekkinn sinn og illa talandi, slefandi Ítala, sem er með yfirumsjón í þessu fagi....ÁN GRÍNS fyrst þegar ég talaði við hann þá hélt ég að ég hefði farið mannavillt og þetta væri soldið-mikið-eftir-á frændi hans. Nei nei svona að öllu gríni slepptu þá er hann ótrúlega klár, veit allt um allt, og með doktorsgráðu í tölfræðitengdri hagfræði eða eitthvað því um líkt.....hvernig honum tókst að mennta sig skil ég ekki því maðurinn getur ekki myndað eins og eina setningu rétta, hann gleymir að kyngja munnvatninu sem gerir það að verkum að hann byrjar nánast að slefa, sjáið hann fyrir ykkur... er mér að takast að gera ykkur það ljóst hvernig þessi maður er??? Þrátt fyrir þessa mál-fötlun sína stoppar það hann ekki í að koma með spurningar og gagnrýna mann í tímanum, gagnrýni er bara af hinu góða....svo lengi sem þú skilur hvað er verið að gagnrýna þig fyrir og getur þar af leiðandi svarað fyrir þig, enda er það það sem þessi tími gengur út á....aaaarrrgggg....ANYWAY eftir að hafa staðið þarna, að mér fannst eins og hálfviti, í 40 mínútur þá fæ ég það komment frá honum að hann var mjög sáttur með ritgerðina og að ég mætti búast við að fá góða einkunn.....það er nú ekki hægt að vera annað en sátt við að heyra það J
Það er óhætt að segja að sumarið sé komið í Árósum, dagurinn í dag er búinn að vera alveg meiriháttar og þá er ekki hægt annað en að brosa framan í lífið og hætta að pirra sig á svona hlutum eins og slefandi Ítölum. Í staðinn er bara málið að fara að grilla og hafa það huggulegt eins og planið er.....
Ég get ekki beðið eftir að koma heim í sumar, það hefur ekki verið að gera mér gott að hafa ekki farið heim um páskana....söknuðurinn er alveg í hámarki.....en ég hef svo mikla trú á þessu sumari þetta á eftir að vera besta sumar ever J
Gott í bili,
Gerður Rún